WULLproject
Árgangur 2021

WULLproject er verkefni sem nýtir vannýtta íslenska ull sem annars skilar engu virði til sauðfjárbænda. Ullin er í lélegri gæðum og í mörgum litum sem hentar illa í framleiðslu á garni. Aftur á móti er ull eitt umhverfisvænasta efni sem fyrir finnst og því mikilvægt að nýta all þá ull sem landið gefur. Með því að uppvinna gömul og gölluð húsgögn og bæta þau með nýstárlegum ullartextíl mun WULL project skapa einstakar vörur sem eru góðar fyrir heimilið og umhverfið. Áherslan liggur í vistvænni framleiðslu og umhverfisvænum vörum sem skaða engin dýr í ferlinu.


