Snjallræði

Snjallræði er 16 vikna háskólahraðall þar sem frumkvöðlateymi eða verðandi frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir og vinna að lausnum, vörum eða verkefnum sem styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og skipta þannig máli fyrir framtíðina. Það geta verið lausnir sem snúa að heilbrigðisþjónustu, velferðartækni, bættu menntakerfi og jafnréttismálum, umhverfismálum svo dæmi séu tekin.

Snjallræði er ætlað vísindafólki, nemendum og starfsfólki háskólanna – en háskólahraðallinn er líka opinn fyrir öllum sem brenna fyrir stórum hugmyndum.

Þátttakendur fara í gegnum hnitmiðað sprotahönnunarferli með leiðsögn sérfræðinga og ráðgjafa úr háskólasamfélaginu en tengjast jafnframt sterku neti úr atvinnulífinu.

Hraðallinn er rekinn í samstarfi við MIT DesignX og byggir á þeirra aðferðafræði. Sérstaðan felst í því að hönnunarhugsun er ofin inn í nýsköpunarferlið, sem gerir kleift að spyrja gagnrýninna spurninga og sameina það besta úr framkvæmdadrifnu atvinnulífi og rannsóknamiðuðu háskólasamfélagi.

Hvernig fer Snjallræði fram?

Snjallræði er hnitmiðaður háskólahraðall sem fer fram frá september fram í desember. Þátttakendur vinna markvisst að því að þróa hugmynd sína áfram með aðferðafræði MIT DesignX, undir leiðsögn sérfræðinga og mentora úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu.

Hraðallinn byggist upp í kringum fjórar vinnustofur, sem fara fram bæði í Reykjavík og á Norðurlandi. Á milli vinnustofa hittast teymin á netinu í hópavinnu og mentorafundum þar sem þau fá stuðning við að færa verkefnin áfram.

Hraðlinum lýkur með lokaviðburði 10. desember, þar sem teymin kynna verkefni sín og þann árangur sem náðst hefur fyrir gestum úr háskólasamfélaginu, atvinnulífinu og nýsköpunarumhverfinu.

  1. Skilningur

    11.-12. september

    Fyrsta skrefið er að skilja vandamálið. Teymin kafa ofan í þarfir notenda, áskorunina sem þau vilja leysa og það samhengi sem hugmyndin sprettur úr.

  2. Lausn

    25.-26. september

    Næst færist fókusinn yfir á lausnina sjálfa. Teymin þróa hugmyndina áfram, prófa forsendur og skoða hvernig hægt er að skapa raunverulegt virði fyrir notendur og samfélag. Vinnustofan fer fram í tengslum við Hönnunarþing á Húsavík.

  3. Sýn

    16.-17. október

    Í þriðju vinnustofunni horfa teymin lengra fram á veginn. Hvert getur verkefnið farið, hverjir eru mögulegir notendur og samstarfsaðilar og hvernig getur hugmyndin vaxið og skapað áhrif?

  4. Framkvæmd

    20.-21. nóvember

    Í lokahluta hraðalsins er áherslan á að gera hugmyndina framkvæmanlega. Teymin vinna að næstu skrefum, viðskiptamódeli, fjármögnun og því hvernig verkefnið getur haldið áfram að þróast eftir Snjallræði.

Mikilvægar dagsetningar

27. ágúst
Umsóknarfrestur
20. ágúst
Kynningarfundur í Háskólanum í Reykjavík
24. ágúst
Kynningarfundur á netinu
Um 4. september
Teymi fá tilkynningu um þátttöku
11. september
Hraðallinn hefst
10. desember
Lokaviðburður

Næsta skref er þitt.