Samfélagshús
Árgangur 2018

Samfélagshúsinu er ætlað að tengja saman íslenskt samfélag og fólk af erlendum uppruna á fjölbreyttan og skapandi hátt. Sérstök áhersla verður lögð á að ná til flóttafólks og fólks í viðkvæmri samfélagsstöðu. Húsinu er í senn ætlað að vera menningarhús, fræðslumiðstöð og griðarstaður fyrir fólk sem vill kynna þekkingu sína og áhugamál fyrir öðrum - staður þar sem ólíkir menningarhópar mætast með það að markmiði að kynnast og tengjast. Húsið á í senn að vera notalegur staður þar sem fólk getur komið og hitt annað fólk án skuldbindinga og unnið eða lært, fengið aðstoð við að fylla út umsóknir og skipst á tungumálaþekkingu. Í húsið kemur reglulega starfsfólk stofnana eins og verkalýðsfélaga, sveitarfélaga og menntastofnana svo dæmi séu tekin, þar sem markmiðið er að fólk af erlendum uppruna geti sótt sér samfélagsráðgjöf og upplýsingar á einum stað. Það er algengt að fólk sem nýlega hefur sest að á landinu missi af mikilvægum upplýsingum um réttindi sín vegna þess hversu óaðgengilegar þær upplýsingar eru. Í húsinu verður lögð áhersla á fjölbreytta tungumálakunnáttu og menningarlæsi þeirra sem veita ráðgjöf og þjónustu.


