← Til baka

VarmaMAX-teymið úr Snjallræði í fremstu röð jarðhitarannsókna

„Maður andar bókstaflega að sér jarðhita á Íslandi. Hann er samofinn samfélaginu."

VarmaMAX-teymið úr Snjallræði í fremstu röð jarðhitarannsókna

„Maður andar bókstaflega að sér jarðhita á Íslandi. Hann er samofinn samfélaginu." Þannig lýsir Agata Rostran Largaespada, annar stofnenda VarmaMAX og fyrrverandi þátttakandi í Snjallræði, því hvers vegna Ísland er einstakur vettvangur fyrir jarðhitarannsakendur. Ekki að ástæðulausu er landinu líkt við Disneyland fyrir þennan hóp vísindafólks í nýlegri umfjöllun Háskólans í Reykjavík.

VarmaMAX, sem tók þátt í Snjallræði árið 2025 undir nafninu GeoMerge, þróar verkfræðilegar lausnir til að hámarka nýtingu og endingu jarðhitaauðlinda. Þau vilja auka orkuframleiðslu á sjálfbæran hátt án þess að bora nýjar holur. Verkefnið styður þannig beint við orkuskipti frá jarðefnaeldsneyti yfir í endurnýjanlega orkugjafa og dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Á bak við VarmaMAX standa þær Agata Rostran Largaespada frá Níkaragva og Ximena Guardia Muguruza frá Perú. Þær kynntust árið 2021 þegar þær unnu saman í rannsóknarteymi og eiga það sameiginlegt að hafa lokið meistaranámi í sjálfbærri orkuverkfræði frá Jarðhitaskóla Íslands (ISE) við Háskólann í Reykjavík, auk náms við GRÓ Jarðhitaskólann. Báðar starfa þær nú við rannsóknir hjá Háskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Maríu Sigríðar Guðjónsdóttur.

Nú síðast hlaut VarmaMAX 20 milljóna króna styrk úr Sprota-áætlun Tækniþróunarsjóðs til að efla starfsemina og halda áfram samstarfi við Landsvirkjun og Háskólann í Reykjavík. Markmiðið er meðal annars að miðla þekkingu og tækni til jarðhitaríkra svæða á borð við Perú, þar sem innviði og tækni skortir enn þrátt fyrir mikla orkuauðlind.

Saga VarmaMAX er skýrt dæmi um hvernig hugmyndir sem fá pláss til að vaxa í Snjallræði geta þróast í raunveruleg, alþjóðleg áhrif og hvernig blanda af rannsóknum, frumkvöðlastarfi og alþjóðlegu samstarfi getur skilað sjálfbærum lausnum á heimsvísu.

Umsóknarfrestur í Snjallræði háskólahraðal rennur út 27. ágúst kl. 23:59.

Ertu með hugmynd sem gæti orðið næsta VarmaMAX? Sækja um hér.

Fleiri fréttir