Nýjar hugmyndir í sviðsljósinu á lokaviðburði Snjallræðis
Átta teymi kynna afrakstur haustsins á lokaviðburði Snjallræðis 10. desember og öll sem hafa áhuga á nýsköpun eru velkomin.
-2.png&w=3840&q=75)
Átta teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði háskólahraðalsins Snjallræðis fimmtudaginn 10. desember næstkomandi. Á dagskrá eru lokakynningar teymanna og umræður með fagfólki úr frumkvöðlasenunni.
Verkefnin í ár spanna allt frá umhverfisvænum umbúðum og fæðuofnæmi til tungumálanáms, fatahönnunar og gervigreindar. Viðburðurinn gefur gestum tækifæri til að kynnast hugmyndunum, hitta fólkið á bak við þær og heyra um næstu skref.
Snjallræði er háskólahraðall Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í samstarfi við MITdesignX. Þar fá teymi stuðning við að þróa hugmyndir sem geta haft mikil áhrif til góðs. Bakhjarlar Snjallræðis eru JBT Marel, Vísindagarðar og Reykjavíkurborg.
Frá því að hraðallinn hófst í september hafa þátttakendur unnið að því að greina viðfangsefni sín, móta framtíðarsýn og undirbúa framkvæmd. Á lokaviðburðinum kynna þau afrakstur þeirrar vinnu.
Teymin í Snjallræði 2026
FreshPak þróar hringrásarvænar umbúðir fyrir kældar ferskvörur.
Rót tengir íslenska fatahönnuði við neytendur á stafrænum vettvangi.
Matstækið metur eignarhald í þróunarsamvinnu.
AllergyID auðveldar miðlun og utanumhald upplýsinga um fæðuofnæmi.
Orðavísir styður íslenskunám með þjálfun í kyni og beygingu nafnorða.
LABÉRA hannar rannsóknarsloppa sem taka mið af líkamsbyggingu kvenna.
OptiDesign nýtir gervigreind til að bæta byggingarhönnun á frumstigi.
Stacco eflir gervigreindarlæsi með tónsköpun.
Öll sem hafa áhuga á nýsköpun eru hvött til að koma og fagna með teymunum!
Fimmtudaginn 10. desember kl. 10 til 12
JBT Marel, Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, salurinn Lón
Léttur morgunverður í boði
.png&w=1080&q=75)
.png&w=1080&q=75)