Opið fyrir umsóknir
Í dag, 11. júní 2026, var opnað fyrir umsóknir í Snjallræði háskólahraðal. Leitað er að öflugum teymum sem vilja þróa hugmyndir, rannsóknir eða verkefni áfram í átt að skýrum lausnum sem geta haft jákvæð áhrif á samfélag og framtíð.

Snjallræði er háskólahraðall fyrir samfélagslega nýsköpun. Þar fá frumkvöðlateymi, rannsóknarteymi, sprotar og verðandi frumkvöðlar tækifæri til að vinna markvisst að þróun hugmynda, vöru, þjónustu eða verkefnum sem takast á við áskoranir samtímans.
Hraðallinn er sérstaklega ætlaður nemendum og starfsfólki háskólanna, þar á meðal vísindafólki, rannsóknarteymum, frumkvöðlum og sprotum sem spretta úr háskólasamfélaginu. Háskólatengd verkefni ganga fyrir við val í hraðalinn, en Snjallræði er jafnframt opið teymum utan háskólanna sem vinna að hugmyndum með samfélagslegt gildi.
Í Snjallræði fara þátttakendur leiðsögn sérfræðinga, ráðgjafa og mentora úr háskólasamfélaginu, atvinnulífinu og nýsköpunarumhverfinu í gegnum hnitmiðað þróunarferli. Hraðallinn byggir á aðferðafræði MIT DesignX, þar sem hönnunarhugsun, frumkvöðlanálgun og gagnrýnin spurningavinna eru nýtt til að hjálpa teymum að skerpa á vandanum, prófa lausnir og finna raunhæfan farveg fyrir næstu skref.
Þátttaka í Snjallræði hentar teymum sem vilja komast lengra með hugmynd sem skiptir máli. Það getur verið verkefni á fyrstu stigum, rannsókn sem hefur möguleika á hagnýtingu, sproti í mótun eða lausn sem þegar hefur verið prófuð en þarf skýrari stefnu, tengslanet eða stuðning til að vaxa.
Af hverju að sækja um?Snjallræði gefur teymum tíma, ramma og aðgang að þekkingu til að þróa hugmyndina sína með markvissum hætti. Þátttakendur fá tækifæri til að vinna með sérfræðingum, hitta mentora, kynnast öðrum teymum og prófa hvort hugmyndin leysi raunverulegan vanda fyrir skýran markhóp.
Hvað fá teymi út úr þátttöku?
Teymin fá stuðning við að móta lausnina, skerpa á virði hennar, byggja upp trúverðuga frásögn, skoða sjálfbærni og áhrif, og undirbúa næstu skref í þróun verkefnisins. Markmiðið er að þátttakendur komi út úr hraðlinum með skýrari stefnu, sterkara tengslanet og betri forsendur til að koma hugmynd sinni í framkvæmd.
Hvað aðgreinir Snjallræði?
Sérstaða Snjallræðis felst í tengingu háskólasamfélags, atvinnulífs og samfélagslegrar nýsköpunar. Hraðallinn sameinar rannsóknamiðaða hugsun, framkvæmdadrifna nálgun og áherslu á lausnir sem geta haft jákvæð áhrif á fólk, umhverfi og samfélag. Snjallræði er því ekki aðeins vettvangur fyrir viðskiptahugmyndir, heldur fyrir verkefni sem byggja á þekkingu, ábyrgð og vilja til að leysa raunverulegar áskoranir.
Sérstök áhersla er lögð á að hvetja fólk af öllu landinu til að sækja um. Góðar hugmyndir og öflug teymi verða til víða og Snjallræði vill ná til nemenda, starfsfólks, rannsakenda og frumkvöðla óháð staðsetningu.
Umsækjendur þurfa að vera í teymi. Teymin geta verið samsett úr nemendum, starfsfólki háskóla, rannsakendum, frumkvöðlum, sérfræðingum eða öðrum sem bæta hvert annað upp og vilja vinna saman að því að þróa hugmynd áfram.
Umsóknarfrestur er til 27. ágúst 2026.


