SoGreen
Cohort 2021

SoGreen ætlar að leysa tvö brýnustu vandamál heims með einni frumlegri lausn. Þær ætla að selja fyrirtækjum vottaðar kolefniseiningar með því að mennta stúlkur í fátækustu ríkjum heims. Hröð fólksfjölgun er mikil hindrun ef okkur á að takast að ná markmiðum Parísarsáttmálans. Og - svo skemmtilega vill til að fátt hægir jafnmikið á fólksfjölgun og það að tryggja stúlkum menntun. Með sölu kolefniseininga mun SoGreen tryggja hjálparsamtökum nýtt og öflugt tekjuflæði til að tryggja stúlkum í fátækustu ríkjum heims menntun. Heimasíða


