Electra
Cohort 2021

Electra er smáforrit sem hefur það markmið að bæta þjónustu við einstaklinga sem að glíma við fíknisjúkdóm á nýstárlegan hátt. Vegna mikillar aðsóknar eftir innlögn á sjúkrahúsinu Vogi var lengsti biðtíminn yfir 300 dagar árið 2019. Á meðan á þessari bið stendur fá skjólstæðingar litla sem enga aðstoð. Electra er handhægt smáforrit sem er alltaf til taks óháð stund og stað. Electra hvetur, leiðbeinir og styður við einstaklinga fyrir og eftir meðferð og eykur líkur á langtíma bata.


